Auglýsing

Könnun

Hvađa tungumál talar ţú?/What language do you speak?

So ronri

01. mars 2008 klukkan 20:33

Svo... Hellsing IV kom út. Það er þrusumagnað.

Ég fór á tónleika með hljómsveitinni Shuttlecock, svakalega skemmtilegir krakkar (um 25-27 ára samt) og góðir tónlistarmenn. Hitti líka svona 16 Bandaríkjamenn, Breta, Ástralíubúa, Nýju Sjálendinga og Suður-Afríkubúa fyrir svona viku. Það var æðislegt, hittumst á breskum-pöbb og fengum okkur svo indverskan mat. Eftir það fórum við í Karaoke.

Awesomeness.

Ég tók því miður ekki með mér myndavél (í hvorugt skiptið) þannig að engar myndir af þessu gott fólk.
So... Hellsing IV was released. That's flippin' awesome.

I also went to a concert with the band Shuttlecock last weekend, they were really nice kids (around 25-27 though, not really kids) and good musicians. Also með about 16 Americans, Australians, Brits, New Zealanders and one guy from South-Africa about a week ago. That was awesome, we met at a British pub, then had some Indian food and afterwards went to Karaoke.

Awesome. Awesome to the max.

I didn't have a camera, on either occasion so no pictures good people.

Ég hitti líka gaur sem heitir Ramesh frá Indlandi, og við fórum út að borða með Bun frá Suður-Kóreu. Hún er því miður farin til baka núna, en ég ætla að hitta Ramesh aftur næstu viku.
I also met a guy called Ramesh from India, and we went together with Bun from South-Korea. She has unfortunately gone back to her home country, but I and Ramesh are going to meet again next week.

VEL Á MINNST; NÝTT MYNDAALBÚM!
BY THE WAY; A NEW PICTURE ALBUM!

Baldur Pétursson Blöndal

Blóđ, jazz og karaoke (Blood, jazz and karaoke)

06. febrúar 2008 klukkan 18:47
Jæja, margt hefur gerst:
Ég fór á myndina Sweeney Todd leikstýrðri af Tim Burton með Sayako og vinkonu hennar. Myndin var æðisleg, mikið betri en ég bjóst við. Þeir sem hafa ekkert á móti smá blóði ættu endilega að kíkja á hana.

Eftir að ég var hinsvegar næstum því dauður úr einveru hérna í Japan sá ég jazzleikara að spila á götuhorni (það er myndband af þeim að neðan). Ég gaf þeim smá pening og hélt áfram, en eftir nokkurn tíma gekk ég aftur fram hjá sama götuhorni og þá voru þeir einmitt að taka saman þannig ég kýldi bara á það og talaði smá við þá. Ég sagðist spila á píanó og þeir buðu mér að spila með þeim á bar sem hetir Blue Fox eftir tvo daga. Fucking win, ég var nefnilega nýbúinn að kaupa ódýrt píanó.
Well, a lot of things have taken place:
I saw Sweeney Todd (directed by Tim Burton) with Sayako and her friend. It was awesome, and much better than I had expected. Those who have no problem with a little splatter in their movies should defiantly check it out.

Also, after having nearly died from lonelyness in Japan I saw a couple og jazz musicians playing at a street corner (you can see them playing in the video below). I gave them a little money and continued with my life, but moments later I was walking past them again so I said "fuck it" and started talking to them. I told them I played the piano and one of them invited me to jam with them at a bar called Blue Fox in a couple of days. Lucky as hell, because I has just bought a cheap electronic piano.



Jæja það endaði með því að ég hitti þá á barinum um 8:30 og við spiluðum saman. Svo töluðum við við nokkrar konur og stelpur til 2 þegar við fórum út að borða. Við vorum þá um 5 mig, 2 úr hljómsveitinni, 2 stelpur og ég. Eftir matinn fórum við í keilu og fórum svo heim klukkan 6 um morgun. Þá þurfti ég að drattast heim. Gangandi. Haldandi á helvítis píanóinu. Þetta var samt æðislegt kvöld. Ég hitti trommuleikarann nokkrum dögum síðar, og svo hittumst við örugglega aftur til að spila.

Svo hitti ég Sayako í kvöld og fór heim til mömmu hennar þar sem við fengum smá að borða. Við fórum síðan á lestarstöðina og hittum vini hennar. Við fórum út að borða með þeim (dálítið mikið borðað er það ekki? Hlæjandi) og eftir það fórum við í karaoke. Ég náði að taka einhverjar myndir þarna þar sem ég gleymdi loksins ekki myndavélinni minni. Ég hef sett þær hingað .

Lögin sem ég söng:
  • It's my life - Bon Jovi
  • Bulls on Parade - RATM
  • Renegade -RATM
  • Barbie Girl -Aqua (dúett)
  • Eitthvað japanskt lag sem ég gat ekki sungið vegna þess að ég gat ekki lesið nógu hratt
Ok, já ég veit; „Barbie Girl“, tja ég hef lítið til að bæta upp fyrir það nema að segja að söng sem Ken en ekki Barbie.
Well, I met the guys at the bar (called Blue Fox) at around 8:30 and we played a little. Then we chatted with some women and two girls until about two o'clock when the five of us (if I recall correctly, we were two band members, two girls and then of course I) left the bar to go get something to eat. After eating we went bowling until about six o'clock in the morning. I had to walk home holding the god damn piano, but it was still an awesome night. I met the drum player a few nights later. We'll probably meet in a few days and play some more.

I also met with Sayako tonight and we went to her mom's and got some snack. Then we went back to the trainstation and met her friends. We had something to eat (seems like I do little else Óákveðinn) and afterwards we went to karaoke. I managed to shoot some pictures because I hadn't forgotten my camera (for once). If you want to see the pictures you can click here .

The songs I sang:
  • It's my life - Bon Jovi
  • Bulls on Parade - RATM
  • Renegade -RATM
  • Barbie Girl -Aqua (duet)
  • Some japanese song who's subtitles I couldn't read fast enough to actually sing
And yes, I know; "Barbie Girl". Well I don't have much to say for myself exept that I sung as Ken. Does that make it better?


Baldur Pétursson Blöndal

25. janúar 2008 klukkan 12:53
Oft hefur það tilkallast að sannanir þurfi til, til þess að jafnvel hinir augljósustu hluti séu gerðir ljósir. Því ætla ég að birta eftirfarandi grein sem var á forsíðu heimasíðu DVs:

Sýklahræddur borgarstjóri

Nýr borgarstjóri Reykjavíkur, Ólafur F Magnússon, lumar jafnan á tveimur rauðum ópalpökkum í vösunum, einum fyrir sjálfan sig og öðrum fyrir annað fólk.

Þetta var fyrirsögnin á heimasíðunni!

Þeir sem eru ekki sannfærðir um að DV sé lélegt mega halda áfram að lesa the Sun, DV og Séð og Heyrt.
Baldur Pétursson Blöndal

Sveppir og teknó víkingurinn! / Mushrooms and teh technoviking!

15. janúar 2008 klukkan 05:45
Baldur Pétursson Blöndal

Ný íbúđ/New apartment

12. janúar 2008 klukkan 08:47
Ég er kominn í nýja íbúð í Shinkobe nálægt hjá Sannomiya lestarstöðinni, ég er búinn að þvo þvottinn og hann er að þorna núna.

Ég ætla að bæta nokkrum myndum inn af þessu óneitanlega spennandi lífi bráðum. Óákveðinn
I've moved to a new appartment in Shinkobe close to the Sannomiya station, I've already done the laundry and it's drying now.

I'm going to add some pictures of this indubitably interesting life soon. Óákveðinn


Vel á minnst- ég fór til Kyoto fyrir svona viku. Það var virkilega skemmtilegt, fullt af hofum of dóti.

(japanskt sjónvarp er undarlegt)
By the way, last week I went to Kyoto. It was pretty awesome, I visited a bunch of temples and stuff.
Baldur Pétursson Blöndal

Um ferđina / About the trip

03. janúar 2008 klukkan 09:25
Íslenska:English:
Flugið átti að fara klukkan 07:15 um morguninn og við áttum að vera laggðir af stað um 4-5 leitið, þannig að ég ákvað að vaka alla nóttina með Andra. Við horfðum á þætti og eitthvað þangað til klukkan 5, en þá keyrðum við til Keflarvíkurflugvallar þar sem við skildumst að. Vegna þess að ég hafði ekki sofið neitt alla nóttina þá var ég dauðþreyttur, en svaf samt lítið í flugvélinni.

Fyrst flugum við frá Keflavík til Stansted (sem tók 3 tíma), og þaðan fórum við til Heathrow með rútu (við vorum samtals 4-5 tíma í Bretlandi). Frá Heathrow flugum við til hins alþjóðlega flugvallar í Kansai (sem tók um 12 tíma). Ég svaf smá á leiðinni til Japans, og þegar við komum út af flugvellinum var klukkan um hádegi.
The flight was due at 07:15 in the morning, so the plan was to leave for the airport around 4-5 o' clock, so I and Andri decided to pull an all nighter. We watched some TV until 5 o' clock when we drove to the airport in Keflavík where we parted. Dispite the fact that I was tremendously sleepy because hadn't slept all night I only caught a little sleep during the flight to London.

At first we flew from Keflavík towards Stansted (around 3 hours), and then from there to Heathrow by bus (around 4-5 hours spent in the UK). From Heathrow we flew to the Kansai International Airport (12 bloody hours..). I slept a little (not enough though) on the way to Japan- but when we finally got out of the plane and past security the time was around noon.
Baldur Pétursson Blöndal

Japan!

02. janúar 2008 klukkan 01:07
Baldur Pétursson Blöndal

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn